Markmið og stefna Zontasambands Íslands til 2020
Félagar í Zonta
Markmið:
- að við náum 200 félögum á svæði 03.
- að fjölga um 10% þeim sem taka þátt í landsfundum, umdæmis- og heimsþingum.
- að klúbbarnir höfði til yngri félaga.
- að klúbbarnir nái að halda í núverandi félaga.
Svona gerum við það:
- Félagar deila þekkingu og hæfni hvers annars innan sinna tengslaneta, bæði persónulegra og í gegnum atvinnu.
- Félagar fylgjast með því að aðrir félagar uni sér í klúbbastarfinu og haldi því áfram að vera félagar.
- Allir félagar ættu að vera opnir fyrir því að taka vel á móti nýjum félögum sem geta unnið að markmiðum og verkefnum Zonta í eigin klúbbi eða öðrum klúbbum.
- Dagskrá félagsfunda þarf að höfða til allra félaga.
- Félagar heimsækja aðra kúbba bæði í tengslum við verkefni og félagsfundi.
- Kúbbarnir verði betur upplýstir um starfsemi annarra klúbba.
- Klúbbarnir styrkja sjálfsmynd félaga með samtali og upplýsingu um það sem Zonta stendur fyrir.
- Landsfundir, þing og aðrar uppákomur bjóði upp innihaldsríka dagskrá sem vekur áhuga.
- Að líta á klúbbana, svæði 3, umdæmi 13 og alþjóðasamtök Zonta sem eina heild.
Klúbbar
Markmið:
- að stofna að minnsta kosti einn nýjan klúbb.
Svona gerum við það:
- Skoðum hvar grundvöllur er fyrir nýjan klúbb, út frá landfræði og fólksfjölda.
- Stuðningsefni um stofnun klúbba og störf Zonta verður uppfært.
- Zontasamband Íslands hvetur klúbba, sem náð hafa stöðugleika í fjölda félaga og búa yfir reynslu, til að bjóða sig fram til að vera móðurklúbbur fyrir nýjan klúbb.
- Klúbbar sem taka að sér hlutverk móðurklúbbs leggja áherslu á eitt verkefni sem nýi klúbburinn getur unnið með þeim eftir stofnun.
- Zontasamband Íslands upplýsir alla klúbba um hvenær og hvar nýr klúbbur verður stofnaður.
- Allir félagar í Zontasambandi Íslands tilnefna einn félaga í nýja klúbbinn.
Verkefni
Markmið:
- Að klúbbarnir gefi 1/3 af söfnunarfé til svæðisbundinna verkefna, 1/3 til verkefna á landsvísu og 1/3 í verkefni alþjóðasamtaka Zonta.
- Að allir félagar á Íslandi þekki bæði svæðsibundin verkefni, verkefni á landsvísu og alþjóðleg verkefni.
- Að fjárframlög verði 2% hærri en á síðasta tímabili.
Stefna:
- Sjá undir upplýsingar og samskipti
Upplýsingar og samskipti
Markmið:
- Að allir félagar þekki markmið og uppbyggingu Zonta samtakanna.
- Að bæði félagar og almenningur þekki verkefnin sem Zonta vinnur að, svæðisbundið, á landsvísu og alþjóðlega.
- Að við séum með heimasíðu sem er upplýsandi og notendavæn.
- Að gera sýnilega baráttu Zonta fyrir bættum aðbúnaði kvenna hvort sem það er svæðisbundið, á landsvísu eða alþjóðlega.
- Að Zontasamband Íslands sé sjálfsagður þátttakandi í allri umræðu um stöðu kvenna.
Svona gerum við það:
- Tryggjum, með því að tilnefna upplýsingafulltrúa, að allt sem er fréttnæmt eins og nýjir formenn eða spennandi verkefni sem unnið er að bæði á landsvísu og svæðisbundið fái umfjöllun í fréttamiðlum.
- Aukin samvinna þvert á klúbba.
- Heimasíðan uppfærð reglulega bæði fyrir svæðið og klúbbana.
- Dagskrá klúbbana verður aðgengileg á heimasíðu.
- Upplýsingar um stjórn Zontasambands Íslands og tengiliði klúbbana séu sýnilegar á heimasíðu.
- Höldum námskeið fyrir vefstjóra og upplýsingarfulltrúa.
- Félagar ræða ýtrekað og af sannfæringu um störf Zonta.
- Félagar bera Zontanælu hversdags.
- Stjórn Zontasambands Íslands heimsækir klúbbfundi og/eða í tengslum við sérverkefni. Stjórnin stuðlar að stöðugri samvinnu á landsvísu, með umdæmi 13 og alþjóðasamtökum Zonta.
- Stjórnin hefur frumkvæði að skipulagningu leiðtoganámskeiða, námskeiða fyrir vefstjóra og upplýsingafulltúa sem og skipulagi landfundar.
Ofangreind markmið og leiðir eru til skoðunar á haustfundum svæðisstjórnar.